Fermingin er tækifæri til að læra um trúna og okkur sjálf. Við tökum frá tíma í kirkjunni og heima og lærum um lífið.
Áttundi nóvember er dagur gegn einelti. Í tilefni dagsins verður kirkjuklukkum um allt land hringt klukkan 13. Í hádeginu verður opnaður nýr vefur á gegneinelti.is. Þar verður hægt að skrifa undir þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti: ...
Hvað er Guð? Hvað er Guð? Hver er Guð? Þannig spyrjum við öll. Kannski er hann nær en við höldum. Kannski birtist hann okkur í fegurð náttúrunnar – í stórfenglegum stjörnuhimninum. Í Jesú frá Nasaret. ...
Öll eigum vð okkar vandamál. Lítil bóla á röngum stað á röngum aldri getur verið stórmál. Hver skilur okkur þá? Hver þekkir okkar vandamál? Hver er okkur alltaf nærri?
Sigurður Árni, prestur í Neskirkju, segir frá krökkunum sem eru í fermingarfræðslu þar. Eitt verkefnið sem þau unnu á fermingarnámskeiðinu í síðustu viku var að skrifa niður framtíðardrauma. Um hvað dreymir þau eiginlega? Hvað skyldi ...
Arnór ætlar að fermast í Hafnarfjarðarkirkju á næsta ári. Hann er einn af krökkunum sem við hittum og spurðum aðeins út í fermingarfræðsluna og trúna. Þetta er það sem hann hafði að segja um Jesús.
Krakkar úr Hafnarfjarðarkirkju og Ástjarnarkirkju hafa verið á sumarnámskeiði fermingarbarna í vikunni. Á fimmtudeginum fóru þau í Skálholt og þá voru þessar myndir teknar. Það eru fleiri myndir í myndasafni kirkjunnar.
Velkomin á ferming.is sem er nýr fermingarvefur þjóðkirkjunnar. Hér ætlum við að blogga um fermingarstarfið og fermingarfræðsluna, deila skemmtilegum myndum og myndböndum og eiga gott samtal í allan vetur. Við erum að setja vefinn upp ...